Sirrý byrjar með lífsins list

Nýr liðsmaður Hringbrautar, Sirrý er ekki einhöm í dagskrárgerðinni því í kvöld byrjar hún með annan nýjan þátt á sjónvarpsstöðinni í sömu vikunni. Fólk með Sirrý vakti mikla athygli á þriðjudagskvöld þar sem hún ræddi um atvinnumöguleika fólks eftir fimmtugt, en í kvöld birtist fyrsti þáttur hennar af Lífsins list, sem er ný skrautfjöður á stöðinni og fjallar um allt það helsta sem er að gerast í menningarlífi landsmanna frá einni viku til annarrar.


Í þættinum í kvöld sem hefst klukkan 21.30 tekur hún hús á Óttari Guðmundssyni rithöfundi og geðlækni sem var að senda frá sér nýstárlega bók um ævi frænda síns, Megasar og má allt eins búast við því að kona Óttars, Jóhanna V. Þórhallsdóttir taki lagið af því tilefni. Þá hittir Sirrý líka fyrir mæðginin Margréti J. Pálmadóttur og Maríus Sverrisson sem syngja sig inn í íslenska vorið.


Þátturinn verður vikulega frumsýndur á fimmtudagskvöldum klukkan 21.30 fram á vor og endursýndur á sama tíma á föstudagskvöldum.


Allt sjónvarpsefni Hringbrautar er einnig aðgengilegt á hringbraut.is, jafnt heilir þættir sem og klippur úr þeim.