Sirrý berndsen: taldi miðilsgáfuna bull áður en hún byrjaði sjálf sinn miðilsferil

Sirrý Berndsen, miðillinn sem ásamt Þórhalli starfsbróður sínum Guðmundssyni troðfyllti Fríkirkirkjuna við Tjörnina á sunnudagskvöld leit sjálf svo á að skyggnilýsingar væru bull og blekkingar áður en hún uppgötvaði þessa náðargáfu sína - að tengja á milli heima núlifandi og framliðinna.

Svo eru liðin tuttugu ár - og hún starfar sem einn vinsælasti miðillinn í Boston. Hún segir frá ferlinum í einkar ahugaverðu og einlægu viðtali í fréttaþættinum 21 í kvöld, meðal annars frá því hvernig það er að aka um borgina í Massachussets með bílinn yfirfullan af framliðnum.

Hún lofar að halda annan skyggnilýsingafund á Íslandi svo fljótt sem auðið er, í stærri kirkju, með betri bekkjum.

Viðtalið byrjar um 21:15.