Sirrý bankar upp á: fullt hús af víni!

Sjónvarpskonan Sirrý byrjaði með nýja þáttaröð á Hringbraut á þriðjudagskvöld, en þar er á ferðinni lífsstílsþátturinn Bankað upp á þar sem Sirrý tekur hús á nafntoguðu fólki og fær áhorfendur til að geta sér til um hver sé raunverulega húsráðandinn.

Í fyrsta þættinum, sem verður endursýndur um helgina, leiddi hún Björgvin Franz Gíslason, leikara inn á fagurlega og ríkmannlega skreytt heimili úti á Seltjarnarnesi þar sem bakaraofninn reyndist lítið sem ekkert notaður, en ein matarskúffan full af núðlusúpum.

Ekki reyndist ráðgátan um hver ætti þarna heima auðveldari þegar kom að þeirri býsn sem var af víni og áfengi í hillum og bekkjum eldhúsisns, hvað þá þegar gamldags forláta ísskápur var opnaður, en hann reyndist yfirfullur af bjór.

Það skrýtna í þessu dæmi öllu saman var að það væri eins og húsráðandinn snerti ekkert á þessu búsi - og ekki léttist brúninn á Björgvini Franz þegar hann sá að rándýrt sjónvarpið af dönskum hágæðum var ekki einu sinni tengt við rafmagn. 

Mörghundruð ára hauskúpan - og ekkert plat þar á ferðinni - gaf þó einhverjar vísbendingar, svo og krimmar á skrýtnum tungumálum. 

Þennan fyrsta þátt Sirrýjar af Bankað upp á, þar sem hún leyfir áhorfendum að skoða heimili þjóðkunnra Íslendinga, án þess þó að gefa upp hver húsráðandinn er (fyrr en í restina) er hægt að skoða hér inn á vef stöðvarinnar, en næsta heimsókn verður að viku liðinni í fylgd annars meðhjálpara.

Með þewssum þáttum, sem eru framleiðsluverkefni Sirrýjar og upptökustjórans Steingríms Jóns Þórðarsonar, tekur Sirrý upp þráðinn frá því hún vann við þáttagerð á Skjáeinum fyrir röskum áratug en þá batt hún margsinnis fyrir augu Árna Péturs Guðjónssonar, leikara og leiddi hann inn í íbúðir sem hann átti að reyna að átta sig á í hverrar eigu var.

Bankað upp á er frumsýnt öll þriðjudagskvöld klukkan 21:30.