Sjónvarpskonunni Sirrý er nákvæmlega ekkert mannlegt óviðkomandi í þáttunum sínum Lífsins list á Hringbraut á fimmtudagskvöldum, en þættirnir verða sýndir áfram í allt sumar.
Í Lífsins list í kvöld verður heilsað upp á listakonuna Ragnhildi Stefánsdóttur sem gerði fyrstu styttuna af nafngreindri íslenskri konu: Ingibjörgu H Bjarnason. Sirrý og Friðþjófur Helgason myndatökumaður fylgdust með afhjúpun styttunnar á Austurvelli 19.júní og heilsa upp á Ragnhildi á heimili hennar og vinnustofu.
Og konur víða um heim eru farnar að lita í litabækur eins og þær gerðu sem telpur. Þessi litabylgja hefur gert vart við sig hjá íslenskum konum. Sirrý heilsar upp á konur úr ólíkum áttum sem koma saman til að lita og bera saman bækur sínar á bókakaffi.
Austurvöllur, Iða bókakaffi í Kvosinni, heimili listakonu, Skólavörðuholtið og Hallgrímskirkja eru viðkomustaðir þessa sumarlega þáttar kl. 20:30 á Hringbraut í kvöld.