„Stjórnvöld hafa fylgst mjög vel með, bæði á vettvangi ráðherranefnda en einnig ráðherrar á sínu fagsviði eftir því sem efni hafa staðið til, allt frá því að í ljós kom að félagið átti í erfiðleikum með að fjármagna sig í gegnum skuldabréfaútboð síðastliðið haust.”
Þetta sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, á Alþingi þegar hann svaraði fyrirspurn Jóns Þórs Þorvaldssonar, þingmanns Miðflokksins. Jón Þór óskaði eftir svörum um hvort ráðherrar og ráðuneyti hefðu búið yfir upplýsingum um skuldsetningu WOW air á Keflavíkurflugvelli. Það er Túristi.is sem fjallar um málið.
Í frétt Túrista kemur fram að ógreidd lendinga- og farþegagjöld félagsins námu rúmum tveimur milljörðum króna þegar það fór í þrot í lok mars. Ef Landsréttur kemst að sömu niðurstöðu og héraðsdómur, í máli Isavia og flugvélaleigunnar Air Lease Corporation, þá fær hið opinbera aðeins greiddan lítinn hluta af kröfunni.
Túristi bendir á að það er fjármálaráðherra sem fer með hlut ríkisins í Isavia en hann segir það hafa verið fyrst í kringum skuldabréfaútboð WOW, sem lauk um miðjan september sl., sem stjórnvöld byrja að fylgjast mjög vel með gangi mála hjá flugfélaginu líkt og segir í svari Bjarna á Alþingi í vikunni. Í greinargerð sem Isavia birti nýverið, vegna kröfu þess á ALC flugvélaleiguna, kemur hins vegar fram að það var strax í lok árs 2017 að safnast höfðu upp vanskil hjá WOW air á Keflavíkurflugvelli.
Á þessum tímapunkti herti Kortaþjónustan sem þjónustaði WOW air skilmála gagnvart öllum viðskiptavinum sínum og fékk flugfélagið ekki lengur hluta af söluverði á ferðum sem voru ófarnar og voru greiddar fyrirfram. WOW air flutti viðskipti sín að stærstum hluta annað en fimmtungur var áfram hjá Kortaþjónustunni. Túristi segir að áhrifin hafi verið mikil og þarna hafi fjármálaráðuneytið dregið lappirnar og ekki farið að fylgjast „mjög vel” með stöðunni.
Þá segir í frétt Túrista. Miðað við það sem hér hefur verið rakið þá voru sterkar vísbendingar um að fyrirframgreiðslur Kortaþjónustunnar, á farmiðapöntunum, hafi verið lykilatriði í rekstri WOW air lengi framan að. Þegar þeirra naut ekki lengur við tók nærri samstundis við skuldasöfnun hjá Isavia undir árslok 2017. Það er fyrst misserum síðar sem fjármálaráðuneytið fer að fylgjast „mjög vel” með gangi mála og það sinnuleysi kann að reynast ríkissjóði dýrkeypt því WOW skildi eftir sig rúmlega tveggja milljarða skuld við Keflavíkurflugvöll og Isavia.
Mun bókin svara spurningum?
Um næstu mánaðamót kemur út bók sem fjallar um ris og fall flugfélagsins WOW air. Höfundur bókarinnar, er Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu. Bókin er með vinnutitilinn Með himinskautum, ris og fall flugfélagsins WOW air.
Í bók Stefáns er að finna nýjar upplýsingar um gjaldþrot flugfélagsins, sem eru sagðar varpa áður óþekktu ljósi á þær fjöldamörgu tilraunir sem voru gerðar til að forða falli þess. Byggir bókin bæði á opinberum heimildum en einnig áður óbirtum skjölum.
Skúli Mogensen afþakkaði samstarf við gerð bókarinnar. Hringbraut náði tali af Skúla Mogensen en hann vildi ekki ræða bókina eða greina frá hvaða skoðun hann hefði á útgáfu hennar.