Sinéad O‘Connor hefur tekið upp Íslamstrú og breytt nafni sínu í Shuhada. Frá þessu greinir hún á Twitter-síðu sinni og birtir mynd af sér með slæðu yfir höfuðið, eða svokallað híjab.
Fréttablaðið segir frá þessu hér
Írska söngkonan O‘Connor segir ákvörðunina rökrétt skref í framhaldi af ferðalagi sínu sem guðfræðingur, segir í fréttinni og orðrétt þetta: Þá hafi ákvörðunin verið ljós í kjölfar lestrar ritningarinnar og lærdómsins sem hún dró af því. Hún þakkar að auki þeim múslimum sem hafa aðstoðað hana í vegferð sinni.