Fjölmiðlamaðurinn góðkunni Sindri Sindrason og eiginmaður hans voru gripnir af Lögreglunni á Norðurlandi vestra fyrir of hraðan akstur nú í byrjun júlí, því er ekki frá sögu færandi nema að Sindri og eiginmaður hans eru ósáttir við að hafa ekki fengið sönnun fyrir brotinu áður en sektin hækkaði. Sindri ræddi málið í Bítinu á Bylgjunni þar sem hann segir farir þeirra ekki sléttar. Þeir hafi verið að keyra á Norðvesturlandi á svæði þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund, þeir voru stöðvaðir af lögreglu sem tjáði þeim að hraði þeirra væri 115 kílómetrar.
Þeir vildu ekki kannast við að hafa ekið svo hratt og báðu um að fá að sjá myndina sem lögreglan tók af þeim, ef hún sýndi að þeir hefðu í raun verið að aka á 115 þá myndu þeir greiða sektina með glöðu geði. Sektin hljóðar upp á 60 þúsund krónur en hækkar upp í 80 þúsund krónur ef hún er ekki greidd innan mánaðar, höfðu þeir til 6. ágúst til að borga sektina. En fyrst vildu þeir fá að sjá myndina sem lögreglan tók. Ekki var hægt að sýna þeim neitt á vettvangi og var þeim bent á að senda tölvupóst. Aldrei kom þó svar.
„Við sendum svo aftur 18. júlí að við værum búnir að reyna að ná í lögregluna í tvær vikur vegna brots á hámarkshraða,“ sagði Sindri. Kom þá svar til baka um að viðkomandi væri í fríi. „Við sendum aftur 20. júlí, bara hafið þið skoðað þetta? Væri fínt að fá svar áður en sektin hækkar.“ Hélt þetta svona áfram. „Aldrei kemur svar.“
Þegar þeir hringdu var þeim bent á að senda tölvupóst á Lögregluna á Norðurlandi eystra. „Ég er ekki að nefna nein nöfn, ég er bara að gagnrýna embættið, en auðvitað er fólk á bak við þetta allt saman.“ Sama sagan var á þeim bænum, ekkert svar barst þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, eina sem þeir vildu var að fá mynd úr myndavél lögreglunnar. „Svo segi ég með blikkkalli, það gafst sem betur fer tími til að senda mér rukkunina,“ sagði Sindri. „Þarna var maður enn í blikkkallsstemmingunni. Maður vill vera kurteis.“
Svo sendi hann 5.ágúst. „Mér finnst fyrir neðan allar hellur að póstunum sé ekki svarað, á meðan hækkar sektin,“ sagði Sindri. „Ég trúi ekki að yfirmaður líti ekki á póstinn sinn og allavega komi þessu máli ekki áfram.“
Sindri hringdi svo og ræddi við lögreglumann sem sagðist hafa séð myndina og hraðinn væri réttur. „Það er ekki vesenið. Bara sýnið okkur myndina. En það er bara ekki hægt. Til þess þurfi að kæra. En fyrir 60 til 80 þúsund kall nenni ég ekki að fá lögfræðing til að halda áfram. Ég bara skil ekki hvers vegna það er ekki bara hægt að senda myndina,“ sagði Sindri. „Eins og þegar við vorum að senda á Lögregluna á Norðurlandi vestra, þetta var allt sumarstarfsfólk, kurteisir og allt það, en það vissi enginn neitt. Eins og maður sé fyrsti maðurinn sem er tekinn fyrir of hraðan akstur. Ég meina, þetta er lögreglan í kringum Blönduós.“
Þeir ákváðu svo að borga sektina áður en hún hækkaði. Sindri segir að þó að hans málið sé lokið þá fyrir alla aðra þá gangi það ekki að lögregla geti ekki sýnt sönnunargagnið. „Maður er alveg brjálaður,“ sagði hann á innsoginu.