Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands frá árinu 2013, hefur stigið til hliðar til að taka við starfi svæðisstjóra Arion banka á Vesturlandi. Við formannsembættinu tekur Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, núverandi varaformaður samtakanna, og verður þar með fyrsta konan til að gegna formennsku hjá samtökunum. Frá þessu er greint á vef Bændasamtakanna.
Guðrún Sigríður er menntaður kennari og rekur sauðfjárbú með systur sinni og fjölskyldum þeirra í Svartárkoti í Bárðardal í S-Þingeyjarsýslu. Hún mun taka við embættinu þann 1. mars næstkomandi.
Guðrún er fyrsta konan til að gegna formennsku í heildarsamtökum bænda á Íslandi, allt frá því að þau fyrstu voru stofnuð undir nafninu „Suðuramtsins húss- og bústjórnarfélag“ árið 1837. Bændasamtök Íslands voru stofnuð í núverandi mynd árið 1995.
Sindri tekur við nýju starfi sínu sem sem svæðisstjóri Arion banka á Vesturlandi með aðsetur í Borgarnesi í apríl. Í ljósi þeirra breytinga lætur hann af öllum trúnaðarstörfum fyrir Bændasamtökin.
„Um þessar mundir er ég búinn að starfa að félagsmálum bænda í um tuttugu ár. Þetta hefur verið lærdómsríkur tími og gríðarmiklar breytingar orðið. Þau sex ár sem ég hef verið formaður Bændasamtakanna hafa verið annasöm og krefjandi en umfram allt skemmtilegur tími. Oft hefur blásið hressilega á móti í umræðu um landbúnaðarmál en alltaf er jafn ánægjulegt að sjá hvað velvild almennings er mikil gagnvart íslenskum bændum. Á þessum tíma hef ég kynnst mikið af fólki úr öllum greinum samfélagsins, með mismunandi skoðanir á öllu því sem tengist landbúnaði. Öllu þessu fólki vil ég þakka gott samstarf og hressileg skoðanaskipti. Samstarfsfólki mínu og framvarðasveit landbúnaðarins þakka ég kærlega fyrir frábært samstarf,” segir Sindri.