Símtal davíðs og geirs er svo „íslenskt“

Eitt frægasta símtal Íslandssögunnar, milli Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde, er til umfjöllunar í Kjarnanum á Hringbraut í kvöld klukkan 21. Þar er einnig rætt um almenna tregðu íslenskra stjórnvalda til að veita almenningi upplýsingar.

Sím­­tal milli þáver­andi for­­­manns Seðla­­­banka Íslands, Dav­­­íðs Odds­­­son­­­ar, og þáver­andi for­­­sæt­is­ráð­herra, Geirs H. Haarde, sem átti sér stað 6. októ­ber 2008 er umræðu­efni sjón­varps­þáttar Kjarn­ans á Hring­braut í kvöld klukkan 21.  

Í sím­tal­inu ræddu þeir neyð­­ar­lána­lán­veit­ingu til Kaup­­þings upp á 500 millj­­ónir evra, sem kost­aði íslenska skatt­greið­endur á end­­anum 35 millj­­arða króna í tap. End­ur­rit af sím­tal­inu birt­ist í fyrsta sinn opin­ber­lega fyrir um tíu dögum í Morg­un­blað­inu, sem Davíð rit­stýr­ir.

Þórður Snær Júl­í­us­son fær Þor­björn Þórð­ar­son, frétta­mann á frétta­stofu 365 og lög­fræð­ing, til að ræða sím­talið og þær upp­lýs­ingar sem fram koma í þeim. Þor­björn skrif­aði leið­ara í Frétta­blaðið í síð­ustu viku þar sem hann velti því fyrir sér hvort að þau sam­skipti sem áttu sér stað í sím­tal­inu gætu verið umboðs­svik, með vísun í dómafor­dæmi Hæsta­rétt­ar.

Jón Stein­dór Valdi­mars­son, for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar, er einnig gestur þátt­ar­ins og ræðir meðal ann­ars um hvað valdi því að íslensk stjórn­sýsla er svona oft treg til að opin­bera upp­lýs­ingar sem eiga klárt erindi við almenn­ing.