Veitinga- og fjölmiðlamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, eða Simmi Vill eins og hann er betur þekktur, skrifaði færslu inn á Facebook-hópinn Matartips sem hefur vakið gífurleg viðbrögð þar sem hann hvetur fólk til að hafa aðgát í nærveru sálar áður en það gagnrýnir veitingastaði á hópnum.
„Sem veitingamaður er alltaf gott og hollt að fá Rýni til gagns (Gagnrýni), slík rýni hjálpar okkur að horfa yfir allt sviðið og endurstilla okkar ferla. En oft fer umræðan hér á Matartips.net í óuppbyggilegar upphrópanir.“
Sigmar hefur marga fjöruna sopið í veitingabransanum en hann rekur staðina Barion, MiniGarðinn og Hlöllabáta og ætti því að hafa eitthvað til síns máls.
„Það er enginn veitingamaður sem ég þekki í rekstri til að gera vondan mat, bjóða uppá lélega þjónustu og okra á öllu saman. Hins vegar gerast mistök hjá starfsfólki veitingastaða og stundum eiga þeir ekki sinn besta dag,“ skrifar Sigmar.
Hann segir að í fyrirtæki þar sem 140 starfsmenn mæti til vinnu í viku hverri sé það óréttlátt að dæma alla þá starfsmenn vegna tiltekins atviks á tilteknum tíma sem hefði mátt bara betur.
„Þegar einhver segir um staðina mína að "það sé léleg þjónusta á staðnum", þá er verið að dæma 140 stafsmenn. Ekki bara þennan eina starfsmann sem stóð ekki undir væntingum þínum í þetta ákveðna skipti. Heldur er líka verið að dæma starfsmennina sem ekki voru á vakt.“
Þá bendir Sigmar á honum hafi alltaf fundist það áhugavert að sjá fólk óska eftir fagmennsku, góðri þjónustu og yndislegu viðmóti á sama tíma og það sjálft bíður ekki upp á neitt af því sama í gagnrýni sinni.
„Internetið er máttugur vettvangur, það er í raun orðið fimmta valdið. Það er hægt að skrifa álit sitt á veitingastað og mála hann upp með slíku offorsi að rekstur þess staðar gæti hreinlega farið á hliðina. Þá er ágætt að hugsa til þess að þessi staður sem viðkomandi ákveður að gera að atlagi er vinnustaður fólks. Atvinnuöryggi starfsmanna er ógnað. Er einhver upplifun á veitingastað svo hræðileg að það réttlæti slíkt "end game"?“
Að lokum segir Sigmar að þrátt fyrir að umræða og rýni til gagns sé af hinu góða en nauðsynlegt sé að nálgast náungann af virðingu.
„Matur og menning er frábær, umræða og rýni til gagns er frábær. Ef það væri hægt að minna alla á að "aðgát skal höfð í nærveru sálar" áður en fólk ýtir á Enter á lyklaborðinu, þá værum við með mannlegra samtal á öllum þessum þráðum.“
Matartips er einn stærsti íslenski hópurinn á Facebook með rúmlega 47.000 notendur. Eins og áður sagði hefur færsla Sigmars vakið gífurleg viðbrögð en nú þegar hafa rúmlega 1100 manns „líkað“ við hana og yfir 68 skrifað athugasemdir.