Sigmar Vilhjálmsson, veitingamaður, segist ekki hafa talað fyrir lækkun launa í færslu sem hann birtir á Facebook. Sigmar, eða Simmi eins og hann er gjarnan kallaður, birti pistil á Vísi í vikunni sem vakti mikla athygli þar sem hann velti upp spurningunni hvers vegna dagvinnufólk fái lægri laun en þeir sem vinna um kvöld og helgar.
„Það var ekkert í minni hugmynd sem talaði um lækkun. Heldur frekar hækkun á dagvinnutaxta, þar sem ég sagði að hægt væri þá að einbeita sér að því (í komandi kjarasamningum). Ég hefði geta verið skýrari í því, vissulega,“ skrifar Sigmar.
Í pistli Sigmars á benti hann á að vaktakerfið mismuni fjölskyldufólki, enda sé það í miklum meirihluta þeirra sem eigi erfiðara með að vinna kvöld og helgarvinnu. Sigmar segir sínar hugmynd hafa snúist um það að jafna út eða lækka þann mun sem er á álaginu í takt við það sem tíðkast á Norðurlöndum.
„Hvergi er hærri munur á þessu álagi en hér á Íslandi. Kjaraviðræðurnar í haust munu snúast um lágmarkslaun og grunnlaun (eins og alltaf). Hækkir þú grunnlaun og án þess að lækka mun á álagi (33% og 45% ) mun það hafa gríðarleg áhrif á ferðaþjónustu og ferðaþjónustutengda atvinnustarfsemi sem hefur síðan áhrif á allt i okkar samfélagi enda um að ræða stærstu atvinnugrein á Íslandi. Áhrifin birtast í verðhækkunum og verri samkeppnisstöðu Íslands sem áfangastaður.“
Að sögn Sigmars setur hann sér alltaf þá reglu í hugmyndavinnu að allir hugmyndir fari á töfluna, sama hversu fáránlegar þær séu.
„Því með umræðu um fáránlegustu hugmyndirnar koma oft upp bestu hugmyndirnar. Hef ég nú tekið þátt í ansi mörgum hugmyndahópum í gegnum tíðina. Kjaramál og kjarasamningar eru ekkert öðruvísi. Það að gera kjarasamninga sem hvorki Fyrirtæki né starfsmenn skilja er í besta falli fáránlegt. Ekki nóg með það, þá starfa tugir manna í verkalýðsfélögum og tugir manna í Samtökum Atvinnulífsins við það eitt að túlka Kjarasamninga alla daga allt árið,“ skrifar Sigmar.
Að hans mati er það fráleitt að sérstakt fólk þurfi til að túlka kjarasamninga.
„Í raunheimum atvinnulífsins þá eru samningar sem þurfa mikla túlkun lélegir samningar.“
Þá bendir Sigmar á að gífurleg samkeppni ríki í dag um að fá hæfasta fólkið til starfs og telur hann ýmsar starfsstéttir vera á allt of lágum launum.
„Kennarar, leikskólakennarar, heilbrigðisstarfsfólk, löggæslufólk og starfsmenn á velferðasviðum um allt land eru á alltof lágum launum. Enda gengur illa að manna þarfir á þeim sviðum. Hugmyndin sem ég lagði fram tók. ekki á næturvinnu né vaktaálagi á milli næturvakta og dagvakta til skiptis.“
Að lokum hvetur Sigmar fólk til að koma með uppbyggilega hugmyndir í þessum efnum í stað þess að snúa út úr annarra manna hugmyndum.
„Ég hvet þig til að nýta tíma þinn í þinni stöðu/vinnu til að koma með uppbyggilegar og góðar hugmyndir/rýni til gagns í þessum efnum í stað þess að villa um og snúa útúr hugmyndum sem eru lagðar fram. Uppbyggileg og málefnaleg nálgun mun alltaf skapa umræðu sem getur ekki annað en leitt af sér góðar afurðir,“ skrifar hann.
Færslu Sigmars má lesa í heild á Facebook-síðu hans.