Simmi segir dóms­mál Ingós hollt fyrir sam­fé­lagið: „Annaðhvort er þetta í lagi, eða þetta er ekki í lagi“

Þúsundþjalasmiðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, tjáði sig um málefni Ingó Veðurguðs, sem heitir réttu nafni Ingólfur Þórarinsson. Það gerði hann í hlaðvarpinu 70 mínútur sem er í umsjón hans og Huga Halldórssonar.

Bæði Sigmar og Hugi viðurkenndu að þeir þekktu Ingó, en þeir tóku fram að þeir væru að reyna að lýta á málið með hlutlausum augum. Þá sagðist Simmi vera hræddur við að tjá sig um málið, vegna þess að ummæli hans gætu farið illa í suma.

„Ég er búinn að þekkja Ingó lengi. Það þýðir ekki að ég viti hvað hann geri eða hvort hann geri eitthvað. En þú getur ekki tekið afstöðu þó þú þekkir einhvern. Þú veist ekkert hvað fólk gerir. Þess vegna er ég ekki að taka afstöðu þar. En hins vegar átta ég mig á því að við erum að fara inn í umræðu hérna þar sem ég segi eitthvað sem að Öfga-hópurinn, ef við tökum hann sem dæmi, líkar ekki skoðun mína á málinu hlutlaust. Því ég er að reyna að horfa á þetta hlutlaust. Og ef ég segi eitthvað, og mér verður fótaskortur á tungunni hér á eftir, og þeim mislíkar hvað ég segi þá gætu þær allt eins farið í herferð gegn mér, gegn veitingastöðunum mínum og ógnað þar með rekstri þeirra og starfsmönnum mínum. Þannig ég ber rosa mikla ábyrgð.“

Þetta sagði Sigmar og bætti við að honum þætti erfitt að tjá sig um málið vegna þessa. Hann sagði að ástandið á umræðunni er varðar Ingó Veðurguð þess vegna ekki vera eðlilega.

Þá fjölluðu þeir um meiðyrðamál Ingós gegn Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni. Sigmar súmmeraði dómsmálið upp á þennan hátt:

„Þetta dómsmál snýst um það hvort það megi tala svona um aðra í nafni málfrelsis, eða ekki. Er þetta orðið ærumeiðandi eða ekki? Lögin munu taka á því.“ sagði hann og bætti við: „Ég segi: Þetta dómsmál er dýrmætt fyrir okkur sem samfélag. Því annaðhvort er þetta í lagi, eða þetta er ekki í lagi. Og hvor niðurstaðan sem verður er holl fyrir okkur sem samfélag að vita hvort þetta megi eða megi ekki.“