Símasalan hefur eyðilagt traustið

Ekki er hægt að ráðast í einkavæðingu banka án þess að traust ríki í samfélaginu um slíka aðgerð. Forsala hlutabréfa í Símanum er til þess fallin að eyðileggja slíkt traust. 

Þetta kom fram í máli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, alþingismanns og varaformanns fjárlaganefndar, í þættinum Þjóðbraut á Hringbraut í gærkvöld en þar fóru þeir Páll Magnússon í þaula yfir einn umdeildasta viðskiptagjörninginn frá sjálfu hruninu, þegar sérvaldir fengu að kaupa hluti í Símanum á undirverði og græddu ótæpilega á vildargreiðanum.

Guðlaugur Þór hefur ítrekað krafið forkólfa Bankasýslunnar um svör vegna þessara viðskipta, en ríkið á hlut í Arion banka sem annaðist söluna til hinna útvöldu, þvert á eigendastefnu ríkisins sjálfs. Hann segir í þættinum að Bankasýsla ríkisins verði aftur krafin um svör við spurningum sem tengjast þessari dæmalausu forsölu bréfa á undirverði til útvalinna einstaklinga.

Þjóðbraut er hægt nálgast hér á hringbraut.is.