Saga mikilvægasta símanúmers landsmanna er rakin í máli og myndum í nyjum sjónvarpsþætti á Hringbraut í kvöld þar sem þeir Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar og þáttastjórnandinn Sigmundur Ernir rifja það upp hvernig 112 varð að veruleika hér á landi.
Og sagan er mikil og merkileg, enda hverfist hún um mannskap og tækni, ólík félög og stofnanir og þann grun margra á árum áður að ómögulegt væri að leggja niður hálft annað hundrað símanúmera hjá alls konar viðbragðsaðilum hringinn í kringum landið og taka upp eitt miðlægt númer í staðinn.
Það vantaði raunar ekki efasemdarraddirnar í byrjun, svo sem þær sem töldu það fárskap einan að svarendur neyðarsímtala á einum stað á landinu gætu sagt til um staðhætti á allt öðrum svæðum þess; kauptúnum, dölum, fjörðum og víkum sem þeir sjálfir hefðu kannski aldrei litið augum á ævi sinni.
En þetta hafðist - og sagan er farsæl og andlag hennar hefur skipt sköpun í björgun mannslífa um langt árabil, þökk sé framsýni og kjarki frumherjanna í byrjun, eins og vel kemur fram í þætti kvöldsins sem byrjar klukkan 20:00.