Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra metur það svo að \"silfurskeiðungarnir\" sem leiða ríkisstjórnina séu komnir út á pólitískt berangur vegna öfgafullra launahækkana í landinu.
\"Eitt af allra fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar var að semja við sérgreinalækna um kjarabætur upp á ríflega 30 prósent,\" skrifar Össur í nýrri fésbókarfærslu sinni og rekur söguna: \"Síðan samdi hún við lækna um svipað, þá næst framhaldsskólakennara, og almenni vinnumarkaðurinn fylgdi að sjálfsögðu á eftir. M.a.s. gerðardómurinn skilaði BHM hópunum töluvert meiru en ríkið hefur boðið löggunum, sjúkraliðunum og nokkrum öðrum hópum sem starfa hjá hinu opinbera.\"
Og hann talar hraustlega íslensku sem fyrr: \"Nú rífa silfurskeiðungarnir sig niður í rass og segja að hið opinbera hafi ekki efni á að borga þessum hópum sama og læknunum. Á sama tíma hafa þeir lækkað veiðigjöld á örfámennan hóp stórútgerðarmanna um á annan tug milljarða. - Hvernig er þeirra ranglæti ef þetta er réttlætið,\" spyr Össur Skarphéðinsson og væntir kannski einhvers staðar svars.