Norsk-íslenska síldin hefur ekki fundist jafn vestarlega í hafinu norður af Íslandi og nú í ár, en rannsóknarskipið Árni Friðriksson er nýkomið úr löngum leiðangri umhverfis Ísland þar sem magn uppsjávarfisks var kannað.
Síld fannst nokkuð víða á rannsóknarsvæðinu umhverfis landið að því er fram kemur í tilkynningu Hafrannsóknastofnunar um bráðabirgðaniðurstöður leiðangursins. Norsk-íslensk síld fannst í talsverðu magni austur og norður af Íslandi og íslensk sumargotssíld fyrir sunnan og vestan.
Það sem helst vekur athygli í niðurstöðunum er að norður af Íslandi var vart við töluvert magn af norsk-íslensku síldinni allt vestur að Horni, nyrst á Vestfjörðum, en svo vestarlega hefur síldin líklega ekki gengið frá því á sjöunda áratug síðustu aldar þegar síldarævintýrinu var við það að ljúka á Íslandi - og hafði þá staðið samfellt í þrjá áratugi og fært landsmönnum gríðarleg verðmæti á land, en myndin sem fylgir þessari frétt er einmitt frá þeim tíma.