Þátturinn Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld en þetta er síðari hluti umfjöllunar um Síldarvinnsluna hf. í Neskaupstað (SVN). Í síðustu viku fór þáttastjórnandinn Sigurður K. Kolbeinsson ásamt Friðþjófi Helgasyni myndatökumanni á makrílveiðar með Beiti NK-123 en að þessu sinni verður rætt við Gunnþór Ingvason forstjóra SVN um reksturinn og starfsemi fyrirtækisins sem verður 60 ára á næsta ári. Síldarvinnslan hf. er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi og máttarstólpi atvinnulífs á Norðfirði en hjá fyrirtækinu starf um 350 manns um þessar mundir. SVN rekur öfluga landvinnslu auk bræðslu og frystingar og á dótturfélög á Seyðisfirði, í Helguvík og i Vestmannaeyjum.
Þátturinn er endursýndur kl.23.00 og á morgun miðvikudag, sem og um næstu helgi. Hér má sjá sýnishorn úr þætti kvöldsins.