Sjávarútvegurinn á Íslandi er í stöðgri þróun og það stuðlar að aukinni verðmætasköpun af takmarkaðri auðlind. Rúmir þrír áratugir eru frá því kvótakerfið var innleitt. Nú er fjörug umræða um áhrif gengis króunnar á afkomu fyrirtækja í sjávarútvegi. Því er rétt að skoða tölur um afkomu eins félags.
Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. vegna ársins 2016 var haldinn föstudaginn 9.júní sl. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að hagnaður félagsins árið 2016 nam fjórum komma einum milljarði króna og var á fundinum samþykkt að greiða hluthöfum arð upp á einn komma tvo milljarða króna fyrir rekstrarárið 2016.
- Útgerð félagsins gekk vel á árinu.
- Heildareignir félagins í árslok 2016 voru bókfærðar á rúma fjörutíu og sex milljarða en skuldir og skuldbindingar eru rúmir sautján milljarðar.
- Rekstur Sildarvinnslunnar hf. árið 2016 samkvæmt fréttatilkynningunni félagsins var svona.
- Rekstratekjur á árinu 2016 voru alls átján komma fjórir milljarðar króna og rekstrargjöld námu þrettán milljörðum króna.
- EBIDTA var fimm komma fjórir milljarðar króna.
- Fjármagnsliðir voru jákvæðir um fimm hundruð og áttatíu milljónir króna.
- Hagnaður Síldarvinnslunnar hf. fyrir reiknaða skatta nam fimm komma einum milljarði króna.
- Reiknaður tekjuskattur nam milljarði króna.
- Hagnaður ársins 2016 hjá Síldarvinnslunnar hf. á Neskaupsstað er því fjórir komma einn milljarður króna.
Allar tölur eru fengnar úr tilkynningu félagsins eftir aðalfund.
rtá
Nánar www.svn.is