Þar kemur fram að Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafi kyrrsett eignir í eigu þeirra Jóns Þórs Birgissonar, Georgs Holm og Orra Páls Dýrasonar að beiðni tollstjóra. Í frásögn Fréttablaðsins kemur fram að krafan hafi verið tekin fyrir og birt þeim í desember. Undir kröfuna falla kyrrsetningar á fasteignum, ökutækjum, bankareikningum og hlutafé í fyrirtækjum.
Krafan á hendur Jóni Þór, söngvara Sigur Rósar, hljóðaði upp á 638 milljónir króna. Þar á meðal voru þrettán húseignir, tveimur bifhjólum, tveimur fólksbílum, sex bankareikningum og hlutafé í þremur fyrirtækjum. Tvær fasteignir í eigu trommuleikarans Orra Páls voru kyrrsettar, verðmæti þeirra er um 82 milljónir króna, og tvær fasteignir í eigu bassaleikarans Georgs Holm að verðmæti um 78,5 milljóna voru kyrrsettar.
Allir hafa þeir mótmælt kyrrsetningunni. Segja þeir að stór hluti hennar varði einfalda túlkun á tekjuskattslögum. Hefur Fréttablaðið eftir þeim að um sé að ræða handvömm endurskoðanda en ekki ásetning. Fréttablaðið hefur ekki upplýsingar um fjárhæð meintra skattaundanskota, en miðað við umfang kyrrsetninga eru líkur á að þær nemi hundruðum milljóna.