Sigurjón skammar pál og ara: ólína fær 20 milljónir - „aum er staða ykkar“

„Jæja, Ari Trausti, Palli Magg og þið hin sem skipið meirihluta Þingvallanefndar, hvað nú? Ríkissjóður þarf að borga Ólínu Þorvarðardóttur tuttugu milljónir vegna ykkar fantaskapar og miskunnarlausrar framgöngu. Hvað gerið þið? Sitjið áfram eins og ekkert hafi í skorist? Eða hunskist þið burt?“

Þannig hljómar pistill eftir Sigurjón M. Egilsson á Miðjunni. Þar gagnrýnir hann framgöngu Ara Trausta Guðmundsson þingmanns Vg og Páls Magnússonar sem situr á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ólína var metin hæfust umsækjanda til að gegna stöðu þjóðgarðsvarðar á Þing­völl­um en gengið var framhjá henni af Ara Trausta, Páli, Líneik Önnu Sævarsdóttur og Vilhjálmi Árnasyni.

Kærði Ólína málið til kærunefndar jafnréttismála. Nú hefur verið ákveðið að greiða henni 20 milljónir í bætur. Sigurjón M. Egilsson ritstjóri Miðjunnar gagnrýnir framgöngu þingmannanna og segir:

„Nei, þið farið hvergi.  Sá er háttur ykkar stjórnmálamanna. Þið  umfram allt annað. Þið teflið lífi annarra eftir fyrirskipunum að ofan. Úr stjórnarráðinu. Aum er staða ykkar,“ segir Sigurjón og hörðust er gagnrýnin gagnvart Páli. Sigurjón segir:

„Skuggalegust er framganga Páls Magnússonar. Hann mætti ekki einu sinni til kynningar á umsækjendunum. Bara mætti ekki.“