Sigurjón segir skipun þjóðminjavarðar vafasaman gjörning og hneyksli

Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði við Háskóla Íslands, segir skipun Hörpu Þórsdóttur, safnstjóra Listasafns Íslands, í embætti þjóðminjavarðar vera hneyskli og vafasaman gjörning.

Fréttablaðið greinir frá þessu.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, skipaði Hörpu í embættið án þess að það hafi verið auglýst og styðst ráðherra við heimildir til að færa starfsmenn hjá ríkinu til í starfi án þess að auglýsa viðkomandi stöðu lausa til umsóknar.

„Þetta er mjög vafasamur gjörningur og hneyksli á tímum umræðu um gagnsæi og góða starfshætti – ekki síst á vegum hins opinbera,“ segir Sigurjón í samtali við Fréttablaðið. „Þetta virðist vera ákveðið í skjóli nætur og án nokkurrar umræðu.“

Sigurjón segir sérkennilegt að gripið sé til þess að færa embættismann til í starfi til að skipa embætti þjóðminjavarðar. Harpa sé góð og gegn og fagmanneskja en engar upplýsingar séu veittar um það hvað hún hafi fram yfir aðra sem gætu sinnt verkefninu. Hann bendir á að aðrir hafi ekki getað lýst sinni sýn á starfið því það hafi ekki verið auglýst.

Þjóðminjasafnið sé sérstök stofnun og ekki aðeins stjórnsýsluvettvangur.