Sigurjón mætir aftur á hringbraut

Sigurjón M. Egilsson mætir aftur á Hringbraut. Nú með þjóðmálaþáttinn Svartfugl. Þátturinn hefur göngu sína næsta miðvikudag, 10.maí.

Þættirnir verða vikulega á dagskrá Hringbrautar á miðvikudögum. Þeir verða einnig sendir út á netinu, á vefmiðlinum midjan.is. Þar verða einstakir liðir þáttarins endursýndir dagana á eftir frumsýningunni. Þættirnir verða síðan endursýndir á Hringbraut á sunnudögum.

Þættirnir verða klukkustundar langir, á dagskrá á milli kl.21 og 22.