Hringbraut miðlar hafa ráðið Sigurjón Magnús Egilsson í starf ritstjóra allra miðla Hringbrautar, það er fyrir sjónvarp, útvarp og netmiðil.
Framundan er meiri þörf fyrir umræðu en oftast, ef ekki meiri en nokkru sinni. Þar mun Hringbraut láta til sín taka.
Sigurjón hefur um árabil stýrt einum vinsælasta útvarpsþætti landsins, Sprengisandur á Bylgjunni. Auk þess að verða ritstjóri allra miðla Hringbrautar mun Sigurjón taka virkan þátt í dagskrá útvarps og sjónvarps Hringbrautar og eins mun hann skrifa á vefinn hringbraut.is.
Á því rúma ári sem sjónvarp Hringbrautar hefur starfað hefur orðið stígandi í áhorfi og sá árangur gefur tækifæri til að eflast enn frekar.
Netmiðillinn hringbraut.is, hefur vaxið hratt og er vissa okkur sú að svo verði áfram
Útvarp Hringbrautar, FM89,1, er að slíta barnsskónum. Með ráðningu Sigurjóns til Hringbrautar verður dagskrá og efnistök útvarpsins aukin og mótuð.
,,Með komu Sigurjóns eykst okkur kraftur og við fáum meiri byr í seglin. Miðlar Hringbrautar er mikilvægur umræðuvettvangur um samfélagsmál og með þessum breytingum mun Hringbraut efla umræðuna enn frekar.”
Aðrir helstu stjórnendur Hringbrautar miðla eru Sigmundur Ernir Rúnarsson, dagskrárstjóri sjónvarps, Björn Þorláksson, fréttastjóri hringbrautar.is, Guðmundur Örn Jóhannsson, útgefandi og stjórnarformaður og Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri.