Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Miðjunnar spyr sig hver það hafi verið sem náði að temja Davíð Oddson, annan ritstjóra Morgublaðsins. Hann bendir á að forsætisráðherrann fyrrverandi hafi dregið úr gagnrýni sinni á íslenska stjórnmálamenn.
„Ekki fæst betur séð en Davíð Oddsson sé hættur afskiptum af íslenskum stjórnmálum. Þó fyrr hefði verið, kann einhver að segja,“ skrifar Sigurjón í pistli á Miðjunni.
„Langt er síðan að Davíð skrifaði eitthvað sem heitið getur um íslensk stjórnmál. Hann hefur látið af gagnrýninni á Bjarna Ben og annað fólk sem er yngra en hann er sjálfur.“
Hann segir að á meðan Davíð hafi verið hvað háværastur í skrifum sínum þá hafi Sjálfstæðisflokkurinn misst fylgi og því spyr hann sig hver hafi komið á hann böndum:
„Var það Bjarni Benediktsson og hans sveit eða voru það útgerðarmenn Moggans?“