„Það er bara ekkert annað. Þar liggur sem sagt mesta hættan. Ekki vegna veirunnar skaðlegu. Nei, hjá fátæku fólki. Fólki sem hefur verið með laun sem duga fjarri fyrir framfærslu,“ segir fjölmiðlamaðurinn Sigurjón M. Egilsson.
Sigurjón, sem er ritstjóri og eigandi Miðjunnar, skrifar pistil á vefinn þar sem hann fer hörðum orðum um Davíð Oddsson, ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra.
Tilefnið er skrif Davíðs í Morgunblaðinu þar sem hann gagnrýnir meðal annars kjarabaráttu Eflingar. Segir hann verkfallsátökin að undanförnu hafa átt stóran þátt í að ýta efnahagslífinu fram á ystu brún.
Sigurjón segir að veturinn sé búinn að vera Íslendingum erfiður. Óveður hafi geisað og nú herji skaðleg veira á landsmönnum. „Við erum fremst þjóða hvað varðar fjölda smitaðra. Barist er hvern dag til að hefta óværuna. Barátta upp á hvern dag.“
Sigurjón bendir réttilega á að þegar háski steðjar að eiga Íslendingar það til að standa saman. Að mestu að minnsta kosti.
„Sumt sem við glímum við, og höfum glímt við, er sjálfskapað. Óvinveitt ríkisvald sýnir ásjónu flesta daga. Öldungadeild Íslands, sem segja má að Davíð Oddsson leiði. Hann, fyrirmennið sjálft, þiggur mánaðarlega áttatíu prósent af launum forsætisráðherra. Og mun gera ævina á enda. Um 1.600 þúsund á mánuði.“
Sigurjón heldur svo áfram:
„Hann skýrir í dag frá mesta háska þjóðarinnar. Hann felst víst i baráttu láglaunakvenna. Eins og til dæmis skúringakonunni sem hann rak þegar hann var borgarstjóri. Í dag sendir hann láglaunakonum óvandaða kveðju:
„…verkfallsátökum sem átt hafa stóran þátt í að ýta efnahagslífinu fram á ystu brún.“
Sigurjón er ekki ánægður með þessi skrif, sérstaklega í ljósi alvarlegra tíðinda af útbreiðslu COVID-19. Að mati Davíðs liggi mestan hættan ekki þar.
„Nei, hjá fátæku fólki. Fólki sem hefur verið með laun sem duga fjarri fyrir framfærslu. Sjálfur þiggur hann hið minnsta jafnvirði launa fimm láglaunakvenna. Fyrir það eitt að hafa, illu heilli, verið forsætisráðherra,“ segir Sigurjón að lokum.