Sigurjón í beinni á hringbraut

Hringbraut stendur frammi fyrir nýjum og spennandi tímum. Hringbraut byrjaði sem sjónvarpsstöð og vefur fyrir rúmu ári en hefur nú fært út kvíarnar með útvarpi einnig. Allmargir dagskrárgerðarmenn koma að vinnu við þáttagerð og má nefna að Eyjólfur Kristjánsson, Eyfi, er tónlistarstjóri og er með daglegan þátt á virkum dögum fyrir hádegi.

Nýr liðsauki hefur nú borist Hringbraut. SME eða Sigurjón Magnús Egilsson, fyrrum ritstjóri Fréttablaðsins og umsjónarmaður Sprengisands á Bylgjunni, hefur hætt störfum hjá 365 og fært sig yfir til Hringbrautar. Í dag klukkan 10 fer fyrsti þáttur SME í loftið, Þjóðbraut, klukkan 10. Honum verður bæði sjónvarpað og útvarpað í beinni útsendingu. Í fyrsta þáttinn mæta til Sigurjóns þau Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Svandís Svavardóttir, Bolli Héðinsson, Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir, Davíð Þór Jónsson og Frosti Logason. \"Pólitík, Panama og fleira skemmtilegt!\" segir Sigurjón um þátt dagsins.

Hér fylgir listi þannig að notendur viti hvar Útvarp Hringbraut er að finna, auk þess sem rafrænn hlekkur er í boði:

89,1 - Bústaðarv. - Reykjavík
91,7 - Hnjúkar      - Blönduósi
91,1 - Hegranes   - Sauðárkróki
89,9 - Hrafnafell   - Egilsstöðum
89,9 - Jórvík        - Selfossi
87,7 - Hallland     - Akureyri
89,9 - Háfell       - Ekki virkt enn.

Hlusta á þátt á netinu: Smella HÉR.

Starfsmenn Hringbrautar hlakka til nýrra tíma þar sem þjónusta við áhorfendur, hlustendur og lesendur vefjarins okkar verður efst á baugi.

Við erum þjóðmálastöð, enda þarf að standa fyrir umræðu nú þegar stórviðburðir skekja samfélagið.