Hæstiréttur dæmdi Sigurjón Þ. Árnason í þriggja og hálfs árs í dag, en hann hafði áður verið sýknaður í héraðsdómi. Sigríður Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, var einnig sakfelld og dæmd í 18 mánaða fangelsi.
Að því er fram kemur í frétt mbl.is um málið í dag voru Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, Sigríður Elín Sigfúsdóttir og Steinþór Gunnarsson ýmist ákærð fyrir umboðssvik eða markaðsmisnotkun.
Sigurjón og Sigríður Elín voru sýknuð í héraði en Steinþór dæmdur í 9 mánaða fangelsi, þar sem sex mánuðir voru skilorðsbundnir. Hæstiréttur dæmdi Steinþór hins vegar til að sitja allan tímann óskilorðsbundið.
Imon-málið sem svo er kallað tengdist sölu Landsbankans á eigin bréfum til tveggja eignarhaldsfélaga í lok september og byrjun október árið 2008. Félögin tvö voru Imon ehf. og Azalea Resources Ltd.
Til stóð að Landsbankinn fjármagnaði kaupin og hefðu þrettán milljarðar króna verið lánaðir til félaganna ef allt hefði gengið eftir. Hins vegar varð „aðeins“ af einni lánveitingu af þremur, upp á fimm milljarða króna til Imon. Engu að síður voru hlutabréf færð inn á félögin í öllum tilvikum og Kauphöllinni tilkynnt um viðskiptin. Hélt saksóknari því fram að það hefði verið gert til að blekkja markaðinn. Fjárfestar hafi komið inn í bankann sem ekki voru tilbúnir að leggja fram neinar tryggingar, engu að síður hafi eignalaus félög þeirra fengið hlutabréf fyrir milljarða króna, eins og segir í úttekt mbl.is í dag.