Bjarna mikið mál að selja íslandsbanka- fær ekki frelsi fyrr

Sigurjón M. Egilsson skrifar á Miðjuna að mögulega komi fljótlega að því að Bjarni Benediktsson hætti í stjórnmálum. En þó ekki fyrr en hann hafi selt Íslandsbanka.

„Kenningar eru uppi um að það sé Bjarna mikið mál að selja Íslandsbanka. Og þá auðvitað til fyrrverandi eigenda,\" skrifar Sigurjón. 

„Þau sem standa að „pólitík“ Bjarna vilja eflaust endurheimta sinn gamla banka, Íslandsbanka. Bjarni fær ekki frelsi fyrr en hann hefur tryggt að svo verði.\"

Bjarni fái því ekki að hætta í stjórnmálum en salan á Íslandsbanka hafi gengið eftir.