Sex gefa kost á sér til fimm manna stjórnar Icelandair Group hf. Kosið verður á aðalfundi á föstudaginn. Sigurður Helgason stjórnarformaður og fyrrverandi forstjóri Flugleiða stígur til hliðar og Magnús Magnússon stjórnarmaður gefur heldur ekki kost á sér til endurkjörs.
Stjórnarmennirnir þrír, Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Úlfar Steindórsson núverandi varaformaður og Katrín Olga Jóhannesdóttir sækjast eftir endurkjöri.
Georg Lúðvíksson,. Ómar Benediktsson og Tómas Tómasson, gefa einnig kost á sér.
Tómas A. Tómasson, þekktari sem Tommi á segist í samtali við Mbl.is í dag ekki vera á vegum neinna hluthafa, heldur á eigin vegum: „Ég hef áhuga á Icelandair Group, ég vann þarna sjálfur í mörg ár, hjá Loftleiðum. Ég þekki auðvitað ekkert annað en ferðamannaiðnaðinn og hótel- og veitingarekstu”, segir Tommi.