Sigurður s. waage er látinn

Sigurður S. Waage fæddist í Reykjavík 2. nóvember 1927. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík 18. maí 2019. Foreldrar hans voru Kristín Helga Vilhjálmsdóttir húsfreyja og Sigurður Waage, forstjóri Sanitas. Sigurður kvæntist Guðrúnu H. Waage en hún lést í nóvember árið 2011. 

\"\"Sigurður ólst upp í miðbæ Reykjavíkur en bjó lengst af við Laugarásveg. Síðustu ár ævinnar dvaldi Sigurður á Hrafnistu í Reykjavík. Sigurður var við nám í Verslunarskóla Íslands og fór síðan í viðskiptanám á vegum Pepsi Cola-fyrirtækisins í New York. Að námi loknu starfaði Sigurður við hlið föður síns sem framkvæmdastjóri Sanitas hf. Uns fyrirtækið var selt.

Eftir það ráku þau hjónin verslunina Silkiblóm. Sigurður gekk til liðs við Flugbjörgunarsveitina skömmu eftir stofnun hennar 1950. Hann var varaformaður sveitarinnar til fjölda ára.

Sigurður var einnig mjög virkur í Jöklarannsóknarfélagi Íslands. Hann var einn af frumkvöðlum Íslendinga í fjallaklifri. Ásamt Finni Eyjólfssyni og Nicolas Clinch kleif hann fyrstur manna Hraundranga í Öxnadal 5. ágúst 1956 og þótti það einstakt þrekvirki.