Sigurður Magnason læknir lést sunnudaginn 21. júlí síðastliðinn, fimmtíu ára að aldri. Sigurður átti ættir að rekja norður í land. Sigður starfaði við góðan orðstír á Heilsugæslunni í Hlíðum í Reykjavík, en hafði áður verið læknir í Kópavogi og á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Þá barðist Sigurður ötullega fyrir aukinni vitundarvakningu um vanda ungra fíkla og var einn af stofnendum samstarfshópsins Allsgáð æska – vímuefnaforvarnir og valdefling foreldra. Sigurður skilur eftir sig tvær dætur. Greint er frá andláti Sigurðar á vef DV.
Þá hefur verið stofnaður styrktarreikningur fyrir dætur Sigurðar og er styrktarreikningur birtur neðst hér í fréttinni.
Guðmundur R. Einarsson, markaðsog þróunarstjóri DV sem vann mikið með Sigurði skrifar á vef dv.is: „Sigurður barðist ötullega fyrir aukinni vitundarvakningu um vanda ungra fíkla og var einn af stofnendum samstarfshópsins Allsgáð æska – vímuefnaforvarnir og valdefling foreldra. Hans hugðarefni var að búa til samráðsvettvang til að valdefla foreldra barna með vímuefnavanda. Í þessum samstarfshópi voru fulltrúar frá Vímulausri æsku, IOGT á Íslandi, Foreldrahúsi og Olnbogabörnum. Markmiðið var að búa til vettvang þar sem foreldrar gátu miðlað reynslu sinni, í þeirri von að þeirra saga gæti hjálpað öðrum.
Sigurður skipulagði nokkur málþing þessu tengdu, sem DV sýndi beint frá. Það fyrsta var haldið 1. september í fyrra í Veröld, húsi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Tilgangur málþinganna var að miðla upplýsingum og draga fram í dagsljósið þá sem hefðu eitthvað fram að færa sem væri valdeflandi fyrir foreldra. Málþingin voru opin öllum, þau voru vel sótt og hjálpuðu mörgum.“
Þá segir Guðmundur um Sigurð:
„DV átti í miklu og góðu samstarfi við Sigurð í tengslum við þetta verkefni og sá undirritaður um að hjálpa honum við undirbúninginn sem stóð yfir í mörg ár. Sigurður brann fyrir þetta verkefni. Hann lagði sig allan í að hjálpa öðrum og vakti athygli hvert sem hann fór, svo mikill var krafturinn og ástríðan. Sigurður var einnig gagnrýninn á íslenska velferðarkerfið og það úrræðaleysi sem blasir við foreldrum barna með fíknivanda.“
Sigurður skilur eftir sig tvær dætur. Útför Sigurðar verður gerð frá Hjallakirkju í Kópavogi þann 8. ágúst næstkomandi klukkan 13.
Guðmundur bætir við:
„DV vottar dætrum, fjölskyldu og vinum Sigurðar innilegar samúðarkveðjur. Við minnumst Sigurðar sem einstaks manns og samstarfsfélaga.“
Stofnaður hefur verið sérstakur söfnunarreikningur fyrir dætur Sigurður.
Styrktarreikningurinn er 0537-14-002470
Kt: 010274-3389