Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, hefur óskað eftir því hjá Héraðsdómi Reykjavíkur að bú hans verði tekið til persónulegra gjaldþrotaskipta.
Þetta staðfestir Sigurður í samtali við DV í dag.
Sigurður var í febrúar síðastliðnum dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Al Thani-málinu svokallaða þar sem fjórir af forsvarsmönnum bankans hlutu þyngstu dóma sögunnar í efnahagsbrotamáli, samtals 18 ára dóm. Sigurður afplánar nú dóm sinn á Kvíabryggju líkt og hinir Kaupþingsmennirnir fyrrverandi.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort héraðsdómur hafi úrskurðað um beiðni Sigurðar sem lögð var fram á dögunum. En DV hefur þó heimildir fyrir því að leit standi yfir að skiptastjóra yfir búinu.
Í samtali við blaðamann DV staðfesti Sigurður heimidlir blaðsins þess efnis að hann hefði nýlega ópskað eftir gjaldþrotaskiptum: \"Já, já. Það er alveg rétt,\"c er haft eftir honum í blaðinu.