Sigurður Kári Kristjánsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi fulltrúi í bankaráði Seðlabankans vakti athygli á því á Alþingi í maí 2011 að gjaldeyrisreglur Seðlabanka Íslands skorti lagastoð. Gat hann þess að til stæði að bæta úr þessu af hálfu stjórnvalda en slíkt kynni þó að vera of seint þar sem þegar hefði verið stofnað til sakamála á grundvelli reglnanna og gæti það leitt til skaðabótaskyldu ríkisins. Svo virðist sem Sigurður Kári hafi reynst sannspár fyrir 6 árum þegar hann lét þessi orð falla á Alþingi Íslendinga en í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.30 í kvöld verður fjallað um Aserta-málið svokallaða sem leiddi af hinum umdeildu reglum Seðlabankans.
Sigurður kári kristjánsson reyndist sannspár
Fleiri fréttir
Nýjast