Sigurður ingi velur sér aðstoðarmann

Benedikt Sigurðsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar, forsætisráðherra.

Benedikt fylgir Sigurði Inga úr atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Benedikt var áður sviðsstjóri ytri- og innri samskipta Actavis á Íslandi og sat einnig í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Benedikt hefur einnig gegn starfi aðstoðarmanns formanns Framsóknarflokksins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, og starfi fjölmiðlafulltrúa Kaupþings banka.