Sigurður Ingi Jóhannsson segir að með nýrri löggjöf sem sé verið að klára innan samgöngumálaráðuneytisins að Uber geti hafið starfsemi hér á Íslandi í vetur. Þetta kom fram í viðtali við hann í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Þar sagði Sigurður Ingi að frumvarpið væri í smíðum og ef Uber myndi uppfylla öll skilyrði nýju laganna væri ekkert fyrir hendi að Uber gæti hafið starfsemi hér á landi.
„Það er sem sagt frumvarp sem hefur verið í smíðum núna um alllangt skeið, við vorum með starfshóp sem skilaði af sér í fyrra og frumvarp sem kemur núna til þingsins bara á næstu mánuðum, þar sem við erum svona að bregðast við með sama hætti og öll Norðurlöndin við svona breyttum almennum reglum um að opna þennan markað meira. Þar gæti Uber alveg komið til greina ef þeir uppfylla skilyrði laganna og þar með geta þeir hafið starfsemi sína hérna á Íslandi.“
Spurður hvort hann hafi heyrt um áhuga Uber að koma hingað til lands sagði Sigurður Ingi að hann hefði ekki gert það.
„Nei, ég hef ekki heyrt það. Það hefur allaveganna ekki komið inn á borð til mín í það minnsta.“
Þá var hann spurður hvort það væri verið að breyta lögunum um leigubílakastur til að Uber geti komið inn á markaðinn játaði samgöngumálaráðherra því. En fór ekki nánar út í hvaða skilyrði Uber þyrfti að uppfylla til að geta hafið starfsemi hér á landi.
„Já já, þeir geta það. Fremur sem þeir uppfylla þau skilyrði sem þarna eru sett um atvinnuleyfi, rekstrarleyfi , öryggi og svo framvegis.“
Aðspurður hvenær þessi lög fari í gegn á Alþingi Íslands segir Sigurður Ingi að það geti verið í vetur.
„Vonandi bara í vetur einhvern tímann. Það fer eftir afköstum þingsins og hvernig móttökurnar verða á þinginu.“