Sigurður Ingi Jóhannson, Innviðaráðherra, og Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, ætla að hittast á fundi snemma á morgun. Frá þessu greinir Vigdís í samtali við fréttastofu RÚV. Þá mun stjórn Bændasamtakanna einnig verða viðstödd á fundinum.
Vigdís segist vona að hún geti lagt málið til hliðar að fundi loknum en árangur fundarins velti Sigurði Inga og því sem hann segi á morgun.
Sigurður hefur sætt harðri gagnrýni fyrir ummæli sín í garð Vigdísar sem hann lét falla í samkvæmi á vegum Framsóknarflokksins sem haldið var fyrir fulltrúa á Búnaðarþingi. Ummælin hafi verið áttu að hafa snúist um húðlit Vigdísar og orðin sögð hafa verið niðrandi.
Í Facebook færslu sem Vigdís birti fyrr í vikunni, þar sem tjáir hún sig um atvikið, segir hún að Sigurður hafi látið særandi orð falla þegar setið var fyrir á myndatöku. Hún greinir frá því í færslunni að bæði hún og starfsmenn samtakanna hafi heyrt þessi en aðstoðarmaður Sigurðar þvertók fyrir það að Sigurður hafi látið rasísk ummæli falla í samkvæminu.