Sigurður Ingi formaður Framsóknarflokksins er nú orðinn andlit veggjalda. Umræðurnar hafa harðnað og á sama tíma hefur Framsóknarflokkurinn hrapað í skoðanakönnunum. Allir eru löngu búnir að gleyma hver átti upptökin en líklega munu Íslendingar aldrei muna eftir því að Jón Gunnarsson kom þessu öllu af stað. En það skiptir engu. Sigurður Ingi situr einn uppi með titilinn.
Þetta er nokkurn vegin megin inntakið í liðnum frá Degi til dags, í Fréttablaðinu. Þar segir enn fremur:
„Þegar tollahliðin verða komin upp má búast við að Framsókn verði komið í pilsner-fylgi en Miðflokkurinn í rauðvíns. Þeir sem munu þurfa að keyra í gegnum hliðin eru að stórum hluta Framsóknarmenn en mörg höfuðvígja flokksins eru í nágrenni höfuðborgarinnar. Samkvæmt könnun vilja aðeins 33 prósent Framsóknarmanna eignast rafbíl, sem er eitt lægsta hlutfall hjá flokkunum. En með veggjöldum er skattheimtunni velt af rafbílanotendum yfir á bensínnotendur.“