Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur og Egill Helgason ræða á Þjóðbraut í kvöld ítarlega um flokksþing Framsóknar um liðna helgi. Stefansía segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi orðið fyrir mikilli gagnrýni, bæði á flokksfundinum sjálfum á sunnudag, t.d. varðandi dagskrána þar sem hann var sakaður um einræðistilburði. Þetta hafi allt virkað neikvætt á flokksmenn og Stefanía tekur undir með Agli um að margt hafi getað gerst á sjálfu þinginu og þar hafi hópur manna ákveðið sig eftir því sem á leið.
Egill Helgason segir að líklega hafi fjölmiðlar misreiknað sig og því felstir talið Sigmund Davíð halda formannssætinu, raddirnar í kringum Sigmund hafi verið háværari en almennir flokksmenn og bendir á kjördæmaþingin sem kröfðust flokksþings og uppgjörs.
Fram kemur í spjallinu að svo stutt er til kosninga og Sigurður Ingi Jóhannsson nýr formaður hefur því skamman tíma til að græða sárin í flokknum og ná góðu fylgi í lok mánaðar þegar kosið verður. Hans prófsteinn á hvort hann hafi verið í raun betri kostur en Sigmundur mun ekki síst vera þær tölur sem koma upp úr kjörkössunum fyrir Framsóknarflokkinn.
Hringbraut var einnig stödd á Alþingi í dag og náði tali af Sigurði Inga og Karli Garðarssyni þingmanni flokksins.