Framsóknarmenn halda nýjum forsætisráðherra innan eigin raða og ríkisstjórnin situr áfram. Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokksins, verður forsætisráðherra Íslands.
Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins svaraði spurningum um þetta rétt í þessu en fyrstur til að gefa þetta til kynna var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sem hraðaði sér niður stiga í þinghúsinu, fór framhjá fréttamönnum og sagði ónefndan þá arftaka sinn mjög traustan mann. Ekki liggur fyrir hvort Sigmundur Davíð hættir á þingi.
Áður voru uppi áætlanir um að Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, yrði forsætisráðherra en lending stjórnarflokkanna er þessi.
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur sagði í kvöldfréttum Sjónvarps að sú niðurstaða að stjórnarflokkarnir sitji áfram sé \"pólitískt hættuspil\" fyrir stjórnarflokkana.
Stjórnarandstaðan segist nú horfa upp á leppstjórn Sigmundar Davíðs.
Fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna telja að um farsæla lendingu sé að ræða.
Tugir þúsunda hafa mótmælt á Austurvelli síðustu þrjá daga þar sem krafan hefur verið kosningar.
Fleiri hrókeringar eru fram undan, fréttin verður uppfærð.
Uppfært kl. 21.05: Bjarni Benediktsson var að tilkynna með Sigurð Inga sér við hlið í Alþingisstiganum fyrir framan fréttamenn að verkaskipting yrði sú sama og áður og að Sigurður Ingi yrði forsætisráðherra. Stefnt væri að því að halda kosningar í haust, flýta kosningum um eitt löggjafarþing, afnám gjaldeyrishafta væri næst á dagskrá.
Sigurður Ingi sagði við sama tækifæri að stjórnin myndi áfram vinna að góðum verkum. Full eining væri innan þingflokkanna. Í ljós komi á morgun hver taki við ráðuneyti atvinnuvega sem Sigurður Ingi gegndi áður. Sigmundur Davíð boði afsögn sína hjá forseta Íslands á morgun en hann verði áfram óbreyttur þingmaður.
Höskuldur Þórhallsson þingmaður telur að Lilja Alfreðsdóttir sem hefur verið efnahagslegur ráðgjafi Sigmundar Davíðs verði ráðherra í stað Sigurðar Inga í atvinnuvegaráðuneytinu en það hefur ekki fengist staðfest.