Sigurður Ingi: „Ég held að þessu fólki myndi líka líða betur“

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, vill skoða að þrepaskipta fjármagnstekjuskatti. Hann segir nauðsynlegt að breyta fyrirkomulaginu og að það sé sanngirnismál.

Rætt var við Sigurð Inga í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni.

Fréttablaðið greinir frá.

Sigurður Ingi segir vaxandi hóp fólks sýsla með fjármuni sem greiði fyrst og fremst fjármagnstekjuskatt.

Hann telur nauðsynlegt að breyta fyrirkomulaginu, það sé sanngirnismál og tryggi sveitarfélögum tekjur. „Ég held að þessu fólki myndi líka líða betur að geta greitt til þess samfélags sem það býr í. Eða því trúi ég.“

Sigurður Ingi telur ekki endilega nauðsynlegt að hækka fjármagnstekjuskattinn sem stendur nú í tuttugu og tveimur prósentum. „Ég held að hann sé ágætur eins og hann er. Hann er að skila okkur 16 milljörðum meira í ár heldur en við bjuggumst við,“ segir Sigurður Ingi sem vill skoða þrepaskiptingu á fjármagnstekjuskatti.

„Ég held það sé sanngirnismál einfaldlega að vaxandi hópur fólks sem sýslar með fé greiði til samfélagsins eðlilegt gjald,“ segir Sigurður Ingi að lokum um fjármagnstekjuskattinn.

Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir komandi þingvetur kemur fram að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hyggst leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um tekjuskatt í apríl næstkomandi.

Frumvarpið felur meðal annars í sér að þeir sem hafa eingöngu fjármagnstekjur verði gert að greiða útsvar til sveitarfélaga.