Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, er gestur Jóns G. í kvöld en fram kemur í þættinum að ríkið hefur fengið um 600 milljarða króna vegna samninga sem náðust við slitastjórnir gömlu bankanna. Þetta er uppreiknuð fjárhæð með öllum framlögum sem hafa borist. Þessi samningar voru eins konar nauðasamningar sem í einni setningu gengu út á að erlendu kröfuhafarnir, helstu eigendur þrotabúanna, fengju 25 til 30% af kröfum sínum og kæmust úr landi með fé sitt en ríkið fengi í staðinn allar eignir þrotabúanna.
Sigurður fékk Fálkaorðuna á nýársdag fyrir framlag sitt til íslensks atvinnulífs, vinnu við losun fjármagnshafta, störf á vettvangi iðnaðarins og InDefence hópsins.
Sigurður var einn af hugmyndafræðingunum á bak við samninga ríkisins við þrotabú gömlu bankanna og sömuleiðis losun fjármagnshaftanna í kjölfarið. Þá mæddi mjög á honum við útfærsluna á Leiðréttinginnu svonefndu.
Farið er yfir þessi mál og fjölmörg önnur með Sigurði í þættinum sem og hvaða helstu áskoranir blasa við iðnaðinum á þessu ári en árið 2020 er ár nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins.
Mjög fróðlegt viðtal við Sigurð – og á dagskrá kl. 20:30 í kvöld.