Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir að Sigurður Ingi Jóhannsson hafi ekkert umboð til að leiða ríkisstjórnina. Framsóknarflokkurinn hljóti að hafa hríðtapað fylgi og trausti undanfarið.
Helgi Hrafn þingmaður Pírata segir að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafi vanmetið kröfur fólksins. Hann hafi ekki séð skilti í gær um að Sigurður Ingi yrði forsætisráðherra. Áfram sé vantraustskrafa á dagskrá.
Katrín Jakobsdóttir formaður VG segir að breyta verði stjórnarháttum.
Þetta eru viðbrögð stjórnarandstöðu við niðurstöðu Bjarna Benediktssonar og Sjálfstæðisflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur sent frá sér yfirlýsingu á vef stjórnarráðsins þar sem hann gefur í skyn að forseti Íslands hafi misskilið þau orð hans fyrr í dag á fundi að Sigmundur Davíð hafi viljað þingrof ef sjálfstæðismenn styddu ekki. Eigi að síður segir Ólafur Ragnar Grímsson að embættismenn forsætisráðuneytisins hafi verið með í för, tilbúnir til að ganga frá skjölum um þingrof ef forseti hefði heimilað.