Vilhjálmur Bjarnason, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna segir nýfallinn dóm Hæstaréttar um lögmæti verðtryggingarinnar vera áfall, en farið verði með málið lengra, enda eitt helsta hagsmunamál heimilanna að hans sögn.
Sigruður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður segir aftur á móti á fésbók sinni í dag að ábyrgð verðtryggingar liggi hjá Alþingi, dóminn beri að skoða í því ljósi: \"Held að niðurstaða í þessu máli sé í samræmi við lög og ekki þýði mikið að agnúast út í réttarkerfið. Vandinn er verðtryggingin sem slík sem byggir á lögum settum af Alþingi. Alþingi getur breytt grunni verðtryggingar og Alþingi getur sett skorður við notkun verðtryggingar í tengslum við lánveitingar og leigu. Alþingi kaus að gera ekkert varaðandi verðtryggingu í kjölfar efnahagshrunsins. Það getur þjóðin þakkað Jóhönnu Sigurðardóttir, Gylfa verkalýðsforingja og einhverjum fleirum,\" segir lögmaðurinn á fésbók sinni í dag.