Sigurður G. sakar Guðna Th. og Elizu um gerendameðvirkni: „Slík háttsemi kann að vera refsivert auðgunarbrot“

Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson sakar Guðna Th. Jóhannesson forseta Íslands og Elizu Reid forsetafrú um gerendameðvirkni fyrir að hafa ekki sagt upp ráðsmanni sem var sakaður um ofbeldi gegn konu. „Forsetaparið tók virkan þátt í því að tryggja ráðsmanni sínum áframhaldandi starf á Bessastöðum,“ segir Sigurður í færslu á Facebook.

„Parið lét sér í létturúmi liggja þó ráðsmaðurinn hafi beitt unga konu ofbeldi og hún hrakist úr starfi sem hún naut. Ætli parið hafi fylgst með líðan hennar og afkomu eftir að hún hrökklaðist úr starfi?“

Sigurður segir að ráðsmaðurinn hafi verið áminntur fyrir þegar upplýst hafi verið um ofbeldi í garð konu og staðarhaldara í ferð til Parísar í Frakklandi.

„Forsetaparinu var sama um hagsmuni staðarhaldarans og fjölskyldu hans. Þau voru jú bara þolendur ofbeldis!,“ segir Sigurður. „Var það kannski eitthvað annað sem komið hafði upp á Bessastöðum og ekki þoldi dagsins ljós?“

Sigurður stingur upp á víni úr kjallara Bessastaða. „Getur verið að embættismaðurinn hafi látið ráðsmanninn afhenda sér til eigin afnota vín í eigu forsetaembættisins ? Slík háttsemi kann að vera refsivert auðgunarbrot, ef sönn er. Getur verið að forsetinn hafi haft spurnir af víntöku úr kjallaranum og því ákveðið fórna staðarhaldara í stað ráðsmanns í þeirri von að aldrei yrði spurt um ólögmæta meðferð á víni embættisins?“