Hönnuðurinn Sigurður Oddsson er ekki par sáttur við nýtt útlit Olís merkisins og í Facebook færslu segir hann að um „nánast glæpsamlegt stórslys í menningarsögu Íslands“ sé að ræða.
Olís tilkynnti um breytingarnar á dögunum og sagði að markmið þeirra væri meðal annars að tengja útlit vörumerkja ÓB og Olís betur saman. Ekki eru þó allir sáttir við þetta útspil Olíufyrirtækisins eins og sjá má af færslu Sigurðar og hafa miklar umræður skapast á samfélagsmiðlum.
„Mér finnst að nú þurfi að heyrast háværar raddir úr faginu til að hrópa út þetta augljósa virðingarleysi, tilgangsleysi, sölumennsku, egó og vanvirðingu gagnvart sögulega langlífri og tímalausri hönnun sem nákvæmlega engin ástæða var fyrir að breyta,“ segir Sigurður.
Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Olís sagði í tilkynningu að Olís hafi viljað „sýna sögunni virðingu en um leið nútímavæða útlit vörumerkisins.“ Sigurður hvetur þó Frosta til að endurhugsa breytingarnar og segir ekki of seint að snúa þeim til baka.
„Ég vil skora á hann og þá sem að þessu standa til að hlusta á almenning, endurhugsa forsendurnar og staldra aðeins við. Það eru fordæmi fyrir því að bakka með svona breytingar, og þó þær gætu verið kostnaðarsamar í dag þá væri það nánast glæpsamlegt stórslys í menningarsögu Íslands að þessi endurmörkun fái að ganga í gegn,“ skrifar hann.