Mál tengd gangandi vegfarendum og vistvænum fararmátum voru áberandi á fundi skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar sem haldinn var í gær. Þar var rætt meðal annars verklagsreglur um stýringu gjaldskyldra bílastæða, uppbyggingu hjólaskýla við HR, skipulagslýsingu fyrir varanlega göngugötu á Laugavegi og verklagsreglur um starfsemi hjólaleiga í borgarlandi.
„Það eru spennandi tímar í gangi hér í borginni þar sem fólk og fjölbreyttir fararmátar fá sífellt meira vægi. Frábært dæmi um það er sú göngugötuvæðing sem hafin er og svo það að von bráðar geta borgarbúar ferðast um á rafmagnshjólum og rafmagnshlaupahjólum sem þeir eiga ekki sjálfir heldur taka tímabundið á leigu,“ segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar.
Stýrihópur um stefnumörkun í bíla- og hjólastæðamálum fékk þau verkefni í fyrra að leggja fram ný viðmið um fjölda bíla- og hjólastæða fyrir skipulagsgerð og við útgáfu byggingarleyfa, verklag við fjölgun gjaldskyldusvæða í borginni og endurskoðun gjaldskrár og gjaldskyldutíma bílastæða. Hópurinn hefur nú skilað af sér skýrslu um málið.
Daði Baldur Ottósson samgönguverkfræðingur hjá Eflu var ráðgjafi hópsins og kynnti tillögur hópsins sem var síðan vísað til meðferðar hjá umhverfis- og skipulagssviði. Daði nefndi að 30% umferðar í borgum stafaði af leit ökumanna að bílastæðum og því sé brýnt að stýra bílastæðum með skilvirkum hætti.
Borgin segir að markmiðið með stýringu bílastæða á borgarlandi sé að bæta lífsgæði og skapa tækifæri fyrir fjölbreyttari notkun borgarlands, styðja við verslun og fyrirtæki og bæta aðgengi íbúa að bílastæðum nærri heimilum. Auk þess að draga úr umferðartöfum, mengun og auka öryggi.
Stýrihópurinn leggur til bætta stefnu í stýringu bílastæða í borgarlandi sem felur meðal annars í sér eftirfarandi:
- Verð gjaldskyldra bílastæða stuðli að því að bílastæðanýting á borgarlandi sé um 85%, eða 1-2 laust bílastæði á skilgreindum götulegg/svæði.
- Gjaldskyldutíminn sé lengdur og gjaldskylda tekin upp á sunnudögum þar sem þörf er á til að stýra bílastæðanýtingu með skilvirkari hætti en í dag eru fjölmargar verslanir, veitingastaðir og kaffihús opin í miðbænum á sunnudögum, ólíkt því sem áður var.
- Gjaldskrá bílastæða verði breytt árlega byggt á gögnum sem safnað er reglulega.
- Setja megi kvöð um hámarkstíma ökutækja í bílastæðum til að tryggja að bílastæði við verslanir og þjónustu séu fyrst og fremst nýtt af viðskiptavinum.
Meirihluti ráðsins telur að stýring og gjaldskylda bílastæða sé öflugasta verkfæri borga til að stýra landnotkun og tryggja sjálfbæra þróun lands sem er gríðarlega mikilvægt í baráttunni við loftslagsbreytingar og til að ná fram breyttum ferðavenjum.
Mikil aukning hefur orðið á stöðvarlausum hjólum í borgum nágrannalandanna og eru þau orðin þáttur í samgöngukerfi þeirra. Hjólin eru handhægur ferðamáti sem flestir ráða við og nýtast vel sem samgöngubót „síðasta spölinn“ heim og að heiman. Tilgangur þessara verklagsreglna er sagður vera að tryggja gagnsætt og opið verklag þegar þjónustuaðili óskar eftir að starfrækja stöðvalausa hjólaleigu með reiðhjólum, hlaupahjólum eða öðrum sambærilegum léttum farartækjum, án fastra hjólastöðva innan borgarlands Reykjavíkur. Þetta var samþykkt og er vísað til borgarráðs.
„Hvern einasta daga erum við að byggja upp og bæta innviði fyrir vistvæna fararmáta í borginni og gefa þeim meira pláss, því að framtíðin felst í fjölbreytileikanum,“ segir Sigurborg Ósk. Samþykkt var á fundinum að kynna framlagða lýsingu skipulagsfulltrúa vegna nýs deiliskipulags fyrir Laugaveginn sem göngugötu og er það í samræmi við samþykkt Borgarstjórnar Reykjavíkur. Markmiðið er að skipuleggja varanlegar göngugötur á Laugavegi, Bankastræti og Skólavörðustíg. Unnið er samhliða að forhönnun og undirbúningi í samráði við hagsmunaaðila, en margir kaupmenn í miðbæ Reykjavíkur hafa mótmælt harðlega komu göngugatna og segja þær eigi eftir að hafa slæm áhrif á rekstur verslana sínar.
Á fundinum var einnig lögð fram umsókn Arkís arkitekta varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskólans í Reykjavík. Í breytingunni felst að afmarkaðir eru þrír byggingarreitir fyrir hjólaskýli á lóð háskólans. Samþykkti fundurinn að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda. Eftir byggingu þeirra verður pláss fyrir 350 hjól í þeim. Einnig er gert ráð fyrir jafnmörgum hjólum í stæðum utan skýlanna.