„Æi plís getum við hætt þessari neikvæðu orðræðu um ADHD lyf. ADHD er taugaþroskaröskun og áskoranir barna með ADHD eru oftast margþættar og hafa ekki bara áhrif á námsgetu,“ segir Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, á Facebook. Þar svarar hún fullyrðingum Arnars Þórs Jónssonar, dómara og frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði í morgun að menntastefnan hefði beðið skipbrot:
„Ég vil að áhersla verði lögð á grunnfög, lestur, skrift og reikning. Drengjum verði veitt miklu meira svigrúm í skólakerfinu og að þeir verði ekki lyfjaðir niður eins og mér sýnist vera gert í stórum stíl,“ sagði hann. „Við þekkjum öll stráka sem eru orkumiklir. Í nútímanum væru þeir sennilega lyfjaðir niður, settir á rítalín.“
Sigurbjörg segir að börn og unglingar með ADHD séu ekki öll í vandræðum með lestur, lesskilning og stærðfræði. Fyrir sum þeirra hjálpa lyf, fyrir þau börn geta lyfin hjálpað á sama hátt og gleraugu hjálpa börnum sem eru sjónskert.
„Að því sögðu þá er vissulega tilefni til að aðlaga kennsluaðferðir og -umhverfið til þess að koma til móts við þarfir barna sem taka inn og vinna úr námsefni á ólíkan hátt. En ADHD lyf eru ekki gefin við námsleiða eða óþekkt heldur að undangengnu ítarlegu greiningarferli, og það ætti ekki að vera sérstakt markmið að börn með þessa taugaþroskaröskun noti ekki lyf.“