Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, tekur undir með Gunnari Birgissyni, fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi, í gagnrýni á núverandi meirihluta Ármanns Kr. Ólafssonar.
Gunnar skrifaði grein í síðasta tölublað Kópavogspóstsins þar sem hann kvartaði yfir framtaksleysi í meirihutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Í nýjasta tölublaðinu segir Sigurbjörg sú gagnrýni vera réttmæra.
„Það er óhætt að segja fá skref hafi verið stigin í átt að framþróun í Kópavogsbæ undanfarin misseri. Meirihlutanum hefur jafnvel reynst torvelt að uppfylla lögbundnar skyldur bæjarins þó á eftir því sé ýtt. Ég hef sem dæmi óskað ítrekað eftir því að við hefjumst handa við að móta stefnu og aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem okkur ber, án þess að eiga erindi sem erfiði,“ segir hún.
„Þó Gunnar hafi eitthvað til síns máls þá ómar samhliða fortíðarsvaldrið í skrifum hans um skort á einbýlishúsalóðum þar sem hann heldur því fram að þétting byggðar fæli ungt fólk frá Kópavogi. Það er hér sem ég og talsmaður afturhaldsins erum stórkostlega ósammála. Fleiri einbýlishúsalóðir leysa ekki vanda ungs fólks nema síður sé.“
Segir hún að ungu fólki í dag sé umhugað um sjálfbæra framtíð, samgöngumiðað skipulag og þéttingu byggðar.
„Framtíðin felst hvorki í faxtækjum né fleiri einbýlishúsalóðum. Hún felst í þéttari byggð, færri bílum og meira mannlífi (og jú, það er einmitt í samræmi við Heimsmarkmiðin).“
Hún segir skrif Gunnars um flótta fjölskyldufólks úr bænum eiga þó rétt á sér. „Undanfarið hefur Kópavogsbúum fjölgað um 17,5% um leið og eldri borgurum fjölgaði um 35%. Skipulagsmálin eiga auðvitað sinn þátt í þessari þróun.“
Leikskólagjöldin í Kópavogi séu umtalsvert hærri en í Reykjavík. Sundlaugar Kópavogs loka klukkan 18 um helgar og bókasöfnin séu lokuð á sunnudögum.
„Stöðnun og íhaldssemi geta ekki tekist á við áskoranir 21. aldarinnar. Til þess þarf víðsýni, frjálslyndi og kjark til að breyta rétt. Líkt og Gunnar vonast ég til þess að næstu kosningar færi Kópavogsbúum framsýnni forystu og betra samfélag.“