Sigur rós segist ekkert hafa að fela

Sigur Rós hefur ekkert að fela. Hljómsveitin segir í tilkynningu sem hún sendi frá sér í dag, að hún hefði veitt skattrannsóknarstjóra allar upplýsingar til þess að greiða úr þeim málum sem þar eru til rannsóknar. 
 

Fréttablaðið skýrði frá því í morgun að Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefði kyrrsett eignir þriggja tónlistarmanna í hljómsveitinni upp á rúmar 800 milljónir króna, vegna rannsóknar skattrannsóknarstjóra á meintum skattalagabrotum. 

Í tilkynningu Sigur Rósar segir meðal annars að hljómsveitinni verið tilkynnt seint á síðasta ári að ekki hafi verið staðið rétt að framtalsskilum hljómsveitarmanna 2010 til 2014. „Ekki er ágreiningur um það af hálfu Sigur Rósar að framtalsgerð og skattskil hljómsveitarinnar hafi að hluta til ekki verið í réttu horfi á þessu tímabili. Þessi tilkynning kom hljómsveitinni í opna skjöldu enda stóðu meðlimir hennar í góðri trú um að rétt væri staðið að skattskilum þeirra og framtalsgerð af hálfu þess sérfræðings sem hljómsveitin hafði ráðið til að sjá um þessi mál,“ segir í tilkynningu þeirra.

Sigur Rós segist jafnan lagt áherslu á rétt skattskilum þeirra hér á landi og hafi ráðið bókhaldsfyrirtækið Virtus til þess að byrja á að koma skattskilum og framtalsgerð í rétt horf í samræmi við lög og reglur. Georg Holm bassaleikari hljómsveitarinnar segir í viðtali við mbl.is í dag að hljómsveitin hafi endurgreitt upphæðina sem upp á vantaði auk vaxta.

Þá segir í tilkynningunni að hljómsveitin hafi fullan skilning á rannsókn skattrannsóknarstjóra en þyki miður að embættið hafi krafist kyrrsetningar á eignunum. Sérstaklega vegna þess að frá upphafi hafa hljómsveitin verið samstarfsfús og í raun engin þörf verið á kyrrsetningu.