Kosningakerfið og misvægi atkvæða innan þess skilar ekki réttri þingmannatölu til flokka, sé litið til úrslita kosninganna.
Skýrasta dæmið er Framsóknarflokkurinn, sem fékk 10,7 prósent atkvæða. Sú niðurstaða hefði átt að skila honum 6,7 þingmönnum. Flokkurinn fær hins vegar átta þingmenn.
Samfylkngin er með meira fylgi, 12,1 prósent, en fær aðeins sjö þingmenn.
Aðrir flokkar fá nokkurn veginn réttan þingmannafjölda.
Ástæða þessa er misvægi atkvæða milli kjördæma og of fáir jöfnunarmenn, sem eiga að úthlutast til að endurspegla réttan þingstyrk flokka miðað við fylgi á landsvísu.
Sigur misvægisins
Fleiri fréttir
Nýjast